Það er ekki nóg....

með að olíufélögin okri á okkur með hjálp ríkisins, bíóhúsin gera það líka þó það sé ekki nauðsynlegt að

fara í bíó. Græðgin er svo mikil. Nú hættir undirritaður endanlega að fara í bíó. Það að borga 1000kr

fyrir einn miða, 300 fyrir lítið glas af kók og 350 fyrir popp er ekkert annað en græðgi.

Hættum að stunda bíóhúsin. Þau hækka alltaf þegar dollarinn hækkar en lækka ALDREI 

 þegar dollarinn lækkar. ALDREI. Hafið þið tekið eftir því?


mbl.is Verð bíómiða að hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt sem kemur manninum við getur dregið hann til dauða......

Meira að segja há elli. Er ekki hægt að eyða peningum í rannsóknir í hluti einsog hvernig má lengja lífið.

Ég er með smá hugmyndir um það : hætta að reykja(lugnakrabbi), hætta að keyra(lugnakrabbi), hætta að borða rautt(magakrabbi), hvítt(hálsnefogeyrnakrabbi), grænt kjöt og krabbakjöt(almennt krabbamein),hætta að hjóla(lugnakrabbi), hætta að labba(lugnakrabbi, táfýla og krabbi í löppum( eða var það krampi) hætta að blikka augum(augnakrabbi), hætta að borða grænmeti og ávexti(það getur valdið krabbameini ef þessir hlutir eru ekki hreinsaðir undir ÍSLENSKU vatni) og svo margt annað 

sem gæti valdið krabbameini. Með öðrum orðum maður má ekki hreyfa sig án þess að eiga það á hættu að fá krabbamein og drepast. eða hreinlega að drepast.

 

Ég veit að krabbamein er slæmur sjúkdómur en öll deyjum við á endanum, þannig er það nú bara. 


mbl.is Farsímar hættulegri en reykingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

lækkuðu þeir þegar hinir risarnir ákváðu að vera ekki með í þetta sinn?

Mig grunar að það sé ennþá samráð hjá þessum félögum. Það lyktar þannig. Þeir hækka á sama

tíma, en lækka seint og síðar meir en samt á sama tíma.

 Mig grunar nú samt að skelfingur hafi verið að reyna fá smá aur til að borga Reykjarvíkurborg 

þessar milljónir sem þeir stálu. Sel það ekki dýrara en ég keypti enda fengið frítt.

 

 

 


mbl.is Skeljungur lækkaði aftur eldsneytisverð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

það má.....

ekki sýna í brjóst eða kynfæri í bandarísku sjónvarpi nema eftir klukkan 22 en það má drepa, limlesta

og kvelja fólk fyrir þann tíma. Er þetta ekki hræsni? Það er í lagi að drepa krakkar mínir

en það að horfa á nakið fólk er óhollt fyrir geðheilsuna, samkvæmt þessu. 


mbl.is ABC gert að greiða háa nektarsekt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef maður situr kyrr eyðir maður engri orku

Hér eru nokkrar af mínum tilgátum 

Apar eru gáfaðri en fólk

Það að reka við hefur skaðleg áhrif á lungun.

 Rautt kjöt getur valdið krabbameini

Hvítt kjöt getur valdið krabbameini.

Það að anda getur valdið krabbameini

Það að vera á lífi getur í sumum tilfellum valdið krabbameini

í öðrum tilfellum dauða.

 

Er þá ekki betra að vera dauður heldur en að deyja úr krabbameini eða hafa áhrif á hlýnun jarðar.

 


mbl.is Ganga skaðlegri en akstur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þetta er náttúrulega snilld.

Hvað er að því að karlinn setjist niður meðan konan er að skoða pils sem hún kemur aldrei til með að kaupa eða eitthvað annað? 

Er eitthvað að því að leyfa karlpeningnum að setjast niður til að horfa á fótbolta meðan konan er að SKOÐA eitthvað?

Það er bara ekkert að því.  Af hverju finnst þessari feministadúllu eitthvað athugavert við þetta? 

vegna þess að allir karlmenn eiga að hanga í konunni meðan hún ákveður hvað á að kaupa.

 

 


mbl.is Pabbar í pössun í Hagkaupum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Montyus Python
Montyus Python

Færsluflokkar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband