Skattur

Úr því að hugmynd um sérstakan sykurskatt er komin fram þá langar mér að benda á fleiri leiðir til að skattpína fólk.

 Netskattur: þar sem 96% íslenskra heimila er með internetið tengt hví ekki að skattleggja tíman sem fólk er á netinu. Þetta gæti verið einsog þegar fólk var með modemin á sínum tíma, segjum 2kr per mínutu eða 120kr per klukkutíma. Það má ekki láta fólk liggja á netinu sólahringunum saman það gæti fitnað. Þetta gæti verið til þess að folk fari meira út en meira um það aðeins neðar.

 

Hamborgaraskattur : Feitmeti  er hrein kvöl fyrir feitt fólk. Lambakjöt og svínakjöt ásamt laxi flokkast undir feitmeti. Þar sem kostnaður heilbrigðisþjónustunar er gífurlegur við að hjálpa fitubollum sem geta ekki tamið sér heilbrigðari matarvenjur, þá má setja sérstakan skatt á feitan mat.

 

Geisladiskaskattur : Þar  sem ónefn samtök telja  er að þeir sem kaupa tóma diska til einkanota stundi þjófnað af hæstu gráðu og setji þýfi sitt á þessa diska. Þessi ónefndu samtök gera þá tillögu um að setja alla þá sem kaupa tóma diska, kalla þá þjófa og skattleggja þá um xxkr per mb.

Þar með ætti þjófnaður á tónlist, bíómyndum og tölvuleikjum að minnka og fólk kaupir meira af þessu sama dóti en minna af diskum.

 

Heilsuskattur: Það færist sífellt meira í vöxt að fólk hreyfi sig meira og því upplagt að skattleggja

heilsusamlegt líferni. Td. mætti setja skatt á heilsuhús einsog world class og fleiri. Það mætti

meira segja skattleggja heilsumat og lífrænt ræktað grænmeti og ávexti. 

 Kynlífsskattur: Við gætum skattlagt fólk sem hreyfir sig óhóflega sérstaklega tveir (eða fleiri) eiga í hlut, vink vink. 

 

Þessir nýju skattar ættu að auka tekjur ríkissins umtalsvert nema að fólk hætti einfaldlega að borða og hreyfa sig.

 

Af hverju er verið að kenna sykruðum drykkjum eingöngu um hrakandi tannheilsu barna? Ef 

Ríkið hefði staðið við sitt þá værum við ekki í þessum vanda með fleiri skemmdar tennur en aðrar 

evrópuþjóðir

 

Er ekki komið nóg af skattpíningu, ef skattar væru lækkaði kæmi meira í kassann

 


mbl.is Tillaga um sykurskatt ótrúleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ber brjósta í sjónvarpi.

Það má senda út myndir með blóði og innyfli á úr fólki á besta tíma í bandarísku sjónvarpi en ef það sést í brjóst þá verður allt brjálað, sérstaklega í biblíubeltinu svokallaða. Er þetta ekki dæmi um hræsni?


mbl.is Hæstiréttur ræðir um bert brjóst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð vor foringi

Hendið fíflinu út á afturendanum og án allra uppsagnarfrests. Hann á það skilið að vera sparkað úr landi. Hann er eina ástæðunum  fyrir því að við erum í þessum skít.

út með hann


mbl.is „Samfylkingin bugaðist"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Olía á $10

Þegar það gerist þá verður bensínverð komið uppí 200kr vegna þess að dollarinn er svo dýr!!!!

Einhver verður að græða á þessu.

 

Mér er spurn sá sem er að spá því að tunnan fari niður í $10 er hann sá sami og spáði að tunna færi í $200 í sumar?


mbl.is Olían í 10 dali?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var svosem auðvitað

Eru þeir komnir með einhverja afsökun fyrir hækkuninni?

Að sjálfsögðu hækka olíufélögin öll með tölu bensínið af því að verð á olíutunnu hefur lækkað undir $40.

Hélt fólk að þeir myndu lækka verð loksins þegar það er komið skykkanlegt verð á olíuna útí heimi? NEI, Þeir hækka það frekar.  Einhver þarf að borga fyrir ofurlaun forstjóranna. Einhver þarf að borga 

nýjar eldsneytisstöðvar sem poppa upp einsog gorkúlur. Einhver þarf að borga lækkunina á olíunni.

Þeir eru ekki að hugsa um almenning í landinu, hann getur blætt út. Ef almenningur þarf að keyra 

þá getur hann tekið strætó. Jafnvel þó hann gangi ekki á sumum dögum og eftir kl. 23:00.

Hvenær ætla þeir að lækka verðið á bensíninu? þegar tunnan á olíunni er kominn í $25? eða $15?

Nei þá verða þeir að hækka verðið vegna þess að það eru svo miklar birgðir. 

Já er það ekki sniðug afsökun, þegar olían lækkar þá eru miklar birgðir af bensíni til í landinu en þegar olían hækkar þá eru litlar birgðir til. Þegar olían lækkar þá er dollarinn svo hátt skráður að þeir geta ekki lækkað verðið. Þegar olían hækkar þá er dollarinn svo hátt skráður að þeir geta ekki annað en hækkað verðið til að geta borgað forstjórunum sín ofurlaun.

  Ég er hundfúll eigandi einkabíls sem ekki getur haldið í við hækkanir á bensíni og öðrum nauðsynum vegna þess að mín laun hafa ekki hækkað til samræmis við hækkanir á lífsnauðsynum.

Hefur einhver hugsað útí það að þegar bensínið hækkar þá hækka lánin og verðbólga eykst? 

AF HVERJU Í Fjandanum?

 


mbl.is Verð á eldsneyti hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bönnum allt.....

Sem ekki fyrirfinnst í biblíunni líka það sem er mótsagnakennt í henni. er það ekki næst á dagskránni? 

Hverskonar heimska er þetta?  Eigum við ekki að banna bíla, síma og annað sem ekki er skráð í biblíunni? hvað með tölvur og bækur? Dettum í sömu gryfju og steintrúaðir múslímar.

 

Nei nú er nóg komið.

Ég hendi frekar biblíunni og hlusta á rokk frekar en að hlusta á svona jólasveina.

 

Mpython 

 


mbl.is Vill banna jólasveina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Olían lækkar í verði....

En bensínverðið á íslandi helst það sama, NEI bíddu það lækkaði um 4kr um daginn.

Hvernig er það með okkur íslendinga ætlum við að sitja undir þessu? það eru okurvextir

á yfirdrættinum og öðrum lánum og verðbólgan á aðeins eftir að hækka. Bensínverð er

eitt af því sem reiknað (stór hluti) er inní verðbólguna. Ef bensíverð verður ekki lækkað

um 10kr að minnsta kosti þá er áfram verið að taka okkur í þurrt sk..opið. Ætlum við að láta þetta 

ganga yfir okkur?

 

Góðar stundir.

Mpython 


mbl.is Hráolíuverð lækkar enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og eiga þeir þá að á hættu að tapa því máli.

Megi þeir halda áfram að hóta íslenskum fjölmiðlum um málsókn, því þá kemur sannleikurinn í ljós.

Hvað halda þessir sjóðir að þeir séu? Þó að þeir eigi milljarða í sjóðum þá þýðir ekki að þeir komi til með að vinna ef þeir láta verða af hótunum sínum. 

 

Ég segi bara gangi þeim vel.

Við erum víkingar við látum ekki einhverja risa útí heimi hræða okkur. 


mbl.is Erlendir vogunarsjóðir hóta íslenskum fjölmiðlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væl væl væl væl

Við erum úr leik, bú hú bú hú, við vinnum engan titil í ár, búhú.

 

Franskur vælukjói 


mbl.is Arsene Wenger: Erum úr leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef launafólk fær kauphækkun....

Þá fer allt til fjandans en ef stóru og feitu bankastjórarnir fá milljónir uppí hundruði milljóna króna í laun þá er það ALLT í LAGI og engin hætta á verðbólgu eða annarri bólgu. Sveiattan.
mbl.is Kennarar telja að laun eigi að hækka um 24-46%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Montyus Python
Montyus Python

Færsluflokkar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband